Print This Page

Stjörnufræði


Stjarneðlisfræði er án efa það svið sem allir geta haft gaman af að stunda. Litbrigði og stórkostleiki stjarnanna gleðja augun og hugann.


Saturnus    Star cluster    Radio telescope


Tengd námskeið hjá eðlisfræðiskor

SEÐ401G Almenn stjarnvísindi (6 einingar)
Markmið: Að kynna nemendum heimsmynd nútíma stjarnvísinda og helstu rannsóknaraðferðir stjarnvísindamanna. Auk almenns menntunargildis ætti námskeiðið að geta orðið undirstaða fyrir þá sem vilja kenna stjörnufræði í framhaldsskólum. Kennsla fer fram með fyrirlestrum, umræðum, einföldum dæmareikningi og stjörnuskoðun.
Námsefni m.a.: Sígild stjarnfræði: Stjörnuhiminninn, hreyfingar himintungla, tímatal. Þættir úr sögu stjarnfræðinnar. Sjónaukar og mælitækni. - Sólkerfið: Sólin, reikistjörnurnar og tungl þeirra, halastjörnur. Uppruni sólkerfisins.- Eiginleikar og þróun sólstjarna: Tvístirni. Breytistjörnur. Stjörnusprengingar. Tifstjörnur og röntgenstjörnur. Hvítir dvergar, nifteindastjörnur og svarthol. - Efnið milli stjarnanna. Geimgeislar. Vetrarbrautin. Venjulegar vetrarbrautir. Virkar vetrarbrautir: Útvarpsvetrarbrautir og dulstirni. - Heimsfræði: Gerð, uppruni og þróun alheimsins. Myndun frumefnanna. Líf í alheimi. Umræðutímar og stjörnuskoðun þegar veður leyfir.

SEÐ502M Stjarneðlisfræði 1  (6 einingar)
Markmið: Að kynna undirstöðuatriði og aðferðir stjarneðlisfræðinnar. Áhersla er lögð á notkun eðlisfræði við líkanagerð og útskýringar á stjarnfræðilegum fyrirbærum.
Námsefni m.a.: Eðli sólstjarna. Ástandsjafna, orkuframleiðsla og orkuflutningur. Geislun. Gerð og þróun sólstjarna. Hamfaraskeið í þróun þeirra: Þyngdarhrun og stjörnusprengingar. Eðlisfræði hvítra dverga, nifteindastjarna og svarthola. Þéttstæð tvístirni og röntgenstjörnur. Tifstjörnur. Vetrarbrautir af ýmsum gerðum, myndun þeirra og þróun. Virkni í kjörnum vetrarbrauta. Efnið milli stjarnanna. Segulsvið í geimnum. Geimgeislar. Valin atriði úr heimsfræði.

SEÐ601G Líf í alheimi (6 einingar)
Markmið: Að kynna nemendum stjörnulíffræði (e. astrobiology), svið þar sem vísindamenn í stjörnufræði, líffræði, jarðfræði, eðlisfræði og efnafræði vinna saman að rannsóknum á uppruna efnisins, stjörnukerfa og lífsins.
Námsefni: Myndun léttra frumefna í frumheimi og þyngri frumefna í sólstjörnum og umhverfi þeirra. Uppruni vetrarbrauta, sólkerfa, sólstjarna og reikistjarna. Myndun sameinda og rykkorna. Sameindir í efninu á milli stjarna og reikistjarna. Eiginleikar kolefnis og annarra frumefna sem virðast nauðsynleg fyrir lífið. Þættir úr lífefnafræði og varmafræði. Myndun og þróun jarðarinnar. Uppruni vatns. Lofthjúpurinn. Jörðin borin saman við aðrar reikistjörnur. Hvað er líf og hvers þarfnast það? Uppruni og þróun lífs á jörðinni. Líf við jaðaraðstæður í hverum, ís og djúpsjávarhverum. Áhrif loftsteinaárekstra og nálægra stjörnusprenginga á jörðina og lífríki hennar. Er líf annars staðar í sólkerfinu, t.d. á Mars, Evrópu eða Títan? Byggileg svæði í alheimi. Reikistjörnur í öðrum sólkerfum. Leitin að lífi utan sólkerfisins, þar á meðal vitsmunalífi. Þversögn Fermis. Mannhorf.


EÐL610M Almenna afstæðiskenningin (8 einingar)
Markmið: Að kenna nemendum undirstöðuatriði í afstæðiskenningu Einsteins.
Námsefni: Takmarkaða afstæðiskenningin, fjórvigrar og þinir. Almenna afstæðiskenningin, sveigja tímarúmsins, jafngildislögmálið, jöfnur Einsteins, samanburður við mælingar innan sólkerfisins, þyngdarbylgjur, svarthol, heimsfræði.



Andromeda    Ant Nebula    Gamma ray burst


Áhugaverðir tenglar

Stjörnufræðivefurinn - Alfræðivefur um stjörnufræði og himingeiminn

Spurningar og svör hjá Vísindavefnum: Stjarnvísindi - Alheimurinn   Almennt   Sólkerfið

Stjarneðlisfræði hjá HyperPhysics

Mynd dagsins


Áhugaverðar bækur

The Universe in a Nutshell eftir Stephen Hawking

The Elegant Universe eftir Brian Greene

NightWatch: A Practical Guide to Viewing the Universe

Exploring Black Holes: Introduction to General Relativity eftir Taylor og Wheeler


Greinar úr RAUST

Litbrigði og þróun vetrarbrautaþyrpinga

Dispersion of Light and the Geometric Structure of the Universe

Líkan af glæðum gammablossa

Host Galaxies of Gamma-Ray Bursts

Svarthol og skammtafræði

Þyngdargeislun



Höfundur:

Previous page: Veðurfræði
Next page: Heimsfræði